• Forsíða
  • Fréttir
  • Aukið samstarf um búfræðinám: FAS og Landbúnaðarháskóli Íslands undirrita samstarfssamning
Aukið samstarf um búfræðinám: FAS og Landbúnaðarháskóli Íslands undirrita samstarfssamning
05.10.2026
Mynd sem tengist textanum

Síðastliðinn föstudag var undirritaður samstarfssamningur á milli Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu og Landbúnaðarháskóla Íslands um kennslu náttúrufræðibrautar með búfræðisviði til stúdentsprófs.

Um er að ræða tveggja ára nám í skyldunámsgreinum og grunngreinum við FAS og tveggja ára nám í búfræði sem lýkur með búfræðipróf við LbhÍ. Að námi loknu brautskrást nemendur með stúdentspróf frá sínum heimaskóla og með búfræðipróf frá Landbúnaðarháskóla Ísland. Markmið samningsin er að gera nemendum með áhuga á landbúnaði kleift að ljúka bæði stúdents- og búfræðiprófi á fjórum árum og jafnframt afla sér góðrar undirbúnings menntunar undir nám og störf í tengslum við íslenskan landbúnað og náttúru.

Samstarfssamningurinn við FAS er sá sjötti sem gerður er um kennslu náttúrufræðibrautar með búfræðisviði til stúdentsprófs en fyrsti samningurinn var gerður við Menntaskóla Borgarfjarðar árið 2007 og hefur samstafrið verið einstaklega farsælt frá upphafi.