BISC-E Nýsköpunarkeppni nemenda - opið fyrir umsóknir
13.11.2023
BISC-E Nýsköpunarkeppni nemenda

BISC-E er evrópsk nemendasamkeppni sem hefur það markmið að efla frumkvöðlastarf á sviði lífvísinda sem tengist tæknilegum, umhverfislegum og samfélagslegum áskorunum samtímans.

Ísland tók þátt í fyrsta sinn í BISC-E 2023 og sendi íslenskt lið í lokakeppnina. Rúna Þrastardóttir doktorsnemi við Landbúnaðarháskóla Íslands leiddi íslenska liðið og verkefnið sem valið var til þátttöku fyrir Íslands hönd ber heitið Insects as protein. Verkefnið felst í próteinframleiðslu úr skordýrum og að hraða þeirra umbyltingu sem er að eiga sér staða í matvælaframleiðslu í heiminum til að hægt sé að fullnægja aukinni próteinþörf. Fimmtán lönd voru með lið í lokakeppninni í ár.

Nú er opið fyrir þátttöku í keppnina 2024. Nánari upplýsingar og skráning hjá Utra Mankasingh

Vefsíða BISC-E 24