Borgarhönnun - sýning skipulagsfræðinema

Meistaranemar í skipulagsfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands taka þátt í Hönnunarmars í ár. Nemendur verða með sýningu á verkefnum á Solon Bistro Bar við Bankastræti og verður hægt að sjá brot af því besta sem þeir hafa unnið í Studíoinu seinustu fimm ár. Jafnframt verður til sölu yfirlitsrit verkanna. Sýningin er opin til 15. mars.

 

 

Borgarhönnun

frá minnstu smáatriðum til heildar myndarinar

STUDIO 2010-2014

Í borgarhönnun vill brenna við að hinn mannlegi mælikvarði gleymist.
Jafnvægi þarf að ríkja milli fagurfræði og virkni borgarumhverfisins.
Á sýningunni eru ögrandi hönnunarverkefni meistaranema í skipulagsfræði við LbhÍ sem hafa á undanförnum árum leikið sér að því í að endurhanna ýmsa borgarhluta.

 

Nemendur í umhverfisskipulagi stefna á að vera með innsetningu á Miðbakka við Reykjavíkurhöfn en það er þó háð veðri og vindum.

 

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image