Dr. Jóhannes Sveinbjörnsson fær framgang í starf prófessors
01.07.2026

Dr. Jóhannes Sveinbjörnsson, dósent við Landbúnaðarháskóla Íslands, hefur fengið framgang í starf prófessors frá og með 1. júlí.
Jóhannes hefur um árabil sinnt kennslu, rannsóknum og þátttöku í alþjóðlegum verkefnum við Landbúnaðarháskóla Íslands og lagt mikið af mörkum til fræðastarfs skólans, sérlega á sviði búfjárræktar og fóðurrannsókna. Framgangurinn er viðurkenning á faglegu framlagi hans, reynslu og virkri þátttöku í uppbyggingu þekkingar á þessum fræðasviðum.
Landbúnaðarháskóli Íslands óskar Jóhannesi innilega til hamingju með framganginn og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs.