Dr. Kristín Svavarsdóttir verður gestaprófessor við LBHÍ
21.08.2026
Mynd sem tengist textanum

Landbúnaðarháskóli Íslands hefur undirritað samning við Dr. Kristínu Svavarsdóttur um að hún verði gestaprófessor við deild Lífs og lands frá 1. ágúst 2026.

Kristín er plöntuvistfræðingur með doktorspróf frá Lincoln University á Nýja-Sjálandi og á að baki farsælan feril við rannsóknir, kennslu og leiðbeiningu nemenda, einkum á sviði plöntuvistfræði, vistheimtar og íslenskra vistkerfa. Hún hefur lengst af starfað sem sérfræðingur hjá Landgræðslunni (síðar Land og skógur) og hefur um árabil komið að kennslu og leiðsögn nemenda við LBHÍ og Háskóla Íslands.

Kristín hefur birt fjölmargar vísindagreinar og skýrslur, stýrt rannsóknaverkefnum og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum í íslensku vísindasamfélagi. Samstarfið við hana mun styrkja enn frekar kennslu, rannsóknir og leiðsögn nemenda við deild Lífs og lands.

Við bjóðum Kristínu hjartanlega velkomna sem gestaprófessor við LBHÍ og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.