• Forsíða
  • Fréttir
  • Dýraheilbrigði og latína í brennidepli: Ný námsleið LbhÍ og pólska háskólans SGGW rúllar vel af stað
Dýraheilbrigði og latína í brennidepli: Ný námsleið LbhÍ og pólska háskólans SGGW rúllar vel af stað
05.10.2026
Mynd sem tengist textanum

Nýja námsleiðin, Búvísindi með áherslu á dýraheilbrigði, rúllar vel af stað. Um er að ræða tveggja ára nám sem skipulagt í samstarfi við dýralæknadeild Lífvísindaháskólans í Varsjá í Póllandi (SGGW). Einn af stærstu áföngum fyrsta ársins er líffærafræði dýra. Í lok september var verkleg fimm daga lota í því fagi, sem er í umsjá kennara frá SGGW. Nemendur sátu sveittir alla vikuna við að læra latnesk heiti á hinum ýmsum beinum í öllum helstu húsdýrum. Þrátt fyrir stífa daga voru nemendur og kennarar enn með bros á vör síðdegis á föstudag.

Kynntu þér námið.