• Forsíða
  • Fréttir
  • Endurmenntunarnámskeið: Þróun plöntuverndarvara, virkni og notkun
Endurmenntunarnámskeið: Þróun plöntuverndarvara, virkni og notkun
30.10.2023

Mörg efni sem notuð eru gegn skaðvöldum á plöntm í landbúnaði og garðyrkju, eða stýra vexti plantna eru að missa markaðsleyfi og ný efni sem koma ný inn á markaðinn hafa ekki sömu virkni og krefjast þar af leiðandi breyttrar nálgunar í úðunartækni, tíðni úðunar, vökvamagni og fleira.

Endurmenntun LBHÍ í samstarfi við Sölufélag garðyrkjubænda, Bændasamtök Íslands og HortiAdvice í Danmörku standa fyrir námskeiðið þar sem farið er yfir þróunina á plöntuverndarvörum á markaðinum í dag, virkni þeirra og notkun.

Þátttakendur öðlast aukna þekkingu á virkni og nýtingu á nýjum tegundum plöntuverndarvara sem eru að koma inn á markaðinum og hvernig tryggja á besta mögulega útkomu við úðun, dreifingu og skömmtun á plöntuverndarvörum. Einnig verður farið yfir helstu skaðvalda sem við er að eiga í ræktuninni og hvaða úrræði eru möguleg til að verjast þeim óværum sem við er að eiga. Hluti námskeiðsins er verklegur.

Kennari: Fríða Helgadóttir garðyrkjuráðunautur hjá HortiAdvice
Hvar
: Hjá LBHÍ á Keldnaholti í ReykjavíkHvenær: Miðvikudaginn 8. nóvember kl. 10-15Skráning: https://endurmenntun.lbhi.is/plontuverndarvorur/