• Forsíða
  • Fréttir
  • Ert þú með hugmynd sem gæti breytt heiminum eða gert hann aðeins grænni?
Ert þú með hugmynd sem gæti breytt heiminum eða gert hann aðeins grænni?
20.03.2026
Mynd sem tengist textanum

UNIgreen háskólanetið, sem Landbúnaðarháskóli Íslands er hluti af, kynnir nýsköpunarkeppnina UNIgreen SURES Challenge Lab sem er kjörinn vettvangur fyrir nemendur sem vilja þróa hugmyndir sínar áfram.

Nýtt í ár er að þátttakendur geta nýtt sama verkefni til þátttöku í tveimur alþjóðlegum keppnum samtímis. Auk UNIgreen SURES Challenge Lab gefst tækifæri til að taka þátt í Bio-based Innovation Student Challenge – Europe (BISC-E), evrópskri keppni sem leggur áherslu á lífhagkerfi og sjálfbærar lausnir.

Hvað er verið að leita að?

Leitað er að nýsköpunarhugmyndum sem tengjast meðal annars:

  • sjálfbærum landbúnaði
  • líftækni og lífhagkerfi
  • matvælum og matvælaöryggi
  • loftslagslausnum og hringrásarhagkerfi

Hugmyndir geta verið á hvaða stigi sem er. Mikilvægast er að þær sýni nýnæmi, byggi á traustum vísindalegum eða tæknilegum grunni og hafi raunhæfa möguleika til frekari þróunar.

Tækifæri í gegnum BISC-E

Verkefni sem uppfylla skilyrði geta einnig tekið þátt í BISC-E keppninni. Þar er lögð áhersla á lausnir sem byggja á lífrænum hráefnum eða ferlum og stuðla að sjálfbærni, minni losun og aukinni hringrás í hagkerfinu. Verkefnin eru unnin í þverfaglegum teymum og miða að því að tengja saman fræði, atvinnulíf og samfélag.

Hverjir geta tekið þátt?

  • Nemendur á BSc, MSc eða PhD stigi
  • Nýútskrifaðir innan eins árs frá útskrift
  • Nemendur í búfræði

Hvað færðu út úr þátttöku?

Með þátttöku færðu tækifæri til að þróa eigin hugmynd áfram, vinna í teymi og fá faglega endurgjöf. Þú færð þjálfun í frumkvöðlastarfi, verkefnastjórnun og kynningum, auk þess að byggja upp tengslanet bæði innanlands og á alþjóðavettvangi. Þátttaka gefur einnig einingar í námi.

Ferlið

Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2026.

Valin teymi taka þátt í vinnustofu 18. maí þar sem unnið er markvisst að þróun hugmynda undir handleiðslu sérfræðinga í nýsköpun. Daginn eftir, 19. maí, kynna teymin verkefni sín fyrir dómnefnd sem velur tvö bestu liðin áfram og veitir verðlaun fyrir þátttökuna.

Þessi teymi fá tækifæri til að taka þátt í lokakeppni UNIgreen í París í október 2026 og, eftir því sem við á, einnig í evrópskri lokakeppni BISC-E.

Umsóknir

Sækja þarf um með því að fylla út umsóknareyðublað fyrir 30. apríl 2026 hér: UNIgreen Innovation Challenge - Application Form – Fill in form

Tengiliður fyrir keppnina er Jóhanna Gísladóttir, [email protected]

Dómnefnd skipa:

Dr. Alexander Schepsky, framkvæmdastjóri Gleipnis nýsköpunar- og þróunarseturs á Vesturlandi sem er samstarfsverkefni á Vesturlandi sem snýr að nýsköpun og þróun tækifæra á sviði landbúnaðar, matvælaframleiðslu, sjálfbærni og loftslagsmála

Áshildur Bragadóttir, endurmenntunar- og nýsköpunarstjóri Landbúnaðarháskóla Íslands

Dr. Jón Grétar Sigurjónsson, kennsluforseti Landbúnaðarháskóla Íslands

Taktu skrefið og nýttu tækifærið til að þróa hugmynd sem getur haft raunveruleg áhrif – bæði á Íslandi og á evrópskum vettvangi.