Fagfólk úr atvinnulífinu leiddi kennslu í Landslagsarkitektúr
15.09.2026
Mynd sem tengist textanum

Öflugur hópur frumkvöðla og sérfræðinga úr atvinnulífinu sá um kennslu á öllum árgöngum náms brautarinnar í Landslagsarkitektúr (LARK) í dag. Riggað var upp mikilli faglegri breidd þar sem nemendur fengu beinan aðgang að reynslu úr atvinnulífinu.

Hjördís Sigurðardóttir, skipulagsfræðingur og eigandi AldinBiodome, er ábyrgðarmaður í áfanganum LARK V – arkitektúr og skipulag. Henni til fulltingis í dag voru arkitektarnir Magnea Guðmundsdóttir og Eva Huld, eigendur teiknistofunnar Stiku, en stofan er þekkt fyrir að leggja áherslu á samfélagslega nálgun, breitt samtal og sértækar lausnir í sínum verkefnum.

Á öðru ári, í áfanganum Landslagsbyggingarfræði LARK II, kenndu landslagsarkitektarnir Arnar Þórson frá Urban Beat og Lilja Kristín Ólafsdóttir hjá Betula. Á sama tíma vann fyrsta árið af kappi að grunnhönnun einkalóðar undir leiðsögn Birgittu Atladóttur hjá Barrdesign.

Tengsl námsins við atvinnulífið og aðgengi nemenda að starfandi fagfólki eru talin gríðarlega mikilvægur þáttur í að búa nemendur undir framtíðarverkefni á sviðinu.