Fagfundur nautgriparæktarinnar
10.04.2024
Fagfundur nautgriparæktarinnar 11. apríl 2024 á Hvanneyri

Fagfundur nautgriparæktarinnar 2024 verður haldinn fimmtudaginn 11. apríl í Ásgarði (Ársal) í Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri og hefst klukkan 13.00. Fundurinn er haldinn af Fagráði í nautgriparækt í samstarfi við BÍ, RML, Lbhí og NBÍ.

Á fundinum verður meðal annars farið yfir rannsóknir á sviði nautgripræktarinnar, innleiðingu á kyngreindu sæði, kynbótastarfið í víðu samhengi og breytingar á námskrá í búvísindum.

Fundurinn er opinn öllum og við hlökkum til þess að sjá ykkur sem flest.

Einnig verður hægt að fylgjast með beinu streymi í gegnum YouTube.

Mynd sem tengist textanum

Fagfundur nautgriparæktarinnar 2024 - streymi

Dagskrá

Mynd sem tengist textanum