Fagfundur sauðfjárræktarinnar - Streymi
20.03.2024
Dagskrá fagfundar í sauðfjárrækt 2024

Fagfundur sauðfjárræktarinnar 2024

Hinn árlegi fagfundur sauðfjárræktarinnar sem fagráð í sauðfjárrækt stendur fyrir hefst kl. 10:00 fimmtudaginn 21. mars á Hvanneyri og er þar fjölbreytt dagskrá að vanda ásamt verðlaunaveitingum. Fundurinn fer fram í Ásgarði, aðalbyggingu LBHÍ á 3. hæð. Hlekkur á streymi fagfundar.

Hátíðardagskrá í fjárhúsunum á Hesti

Að loknum fagfundi hefst hátíðardagskrá í fjárhúsunum á Hesti kl. 18:00 í tengslum við 80 ára afmæli Hestbúsins. Farið verður yfir sögu Tilraunabúsins og þýðingu starfsins sem og starfsemin og búrekstur reifaður í dag. Þá verða húsin skoðuð og léttar veitingar og skemmtun í boði.

Afmælisráðstefna í tilefni 80 ára afmælis Hestbúsins

Föstudaginn 22. mars verður síðan afmælisráðstefna á Hvanneyri kl 9-17 í aðalbyggingu LBHÍ á Hvanneyri. Á ráðstefnunni verður farið yfir rannsóknastarfið á Hesti og áhrif þess á þróun sauðfjárræktar í landinu síðustu 80 árin og að síðan horft til framtíðar og hverjar séu áherslur í ræktun og rannsóknum á komandi áratugum. Hlekkur á streymi afmælisráðstefnu.

Dagskrá

Mynd sem tengist textanum