Frá Hvanneyri til Varsjá: Fyrsti hópurinn hefur nám í dýraheilbrigði
20.08.2026

Þau ánægjulegu tímamót urðu þann 18. Ágúst að 19 nemendur hófu nám á nýrri námsbraut sem ber nafnið Diplóma í búvísindum með áherslu á dýraheilbrigði. Þessi námsbraut er skipulögð í samvinnu við Lífvísindaháskólann í Varsjá í Póllandi (SGGW). Nemendur munu stunda nám við LBHÍ í tvö ár og fara síðan út til Póllands og ljúka náminu þar. Þetta er í fyrsta sinn sem mögulegt er að hefja dýralæknanám hér á landi. Þetta er mikil og góð viðbót við þær námsleiðir sem LBHÍ hefur upp á að bjóða.
Það er almennt mikil eftirvænting í loftinu þessa dagana á Hvanneyri við upphaf skólaárs, bæði hjá nemendum og starfsfólki skólans – og sólin skín.