
Opinn viðburður á vegum GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar í þróunarsamvinnu, Landgræðsluskóla GRÓ, utanríkisráðuneytisins og Landbúnaðarháskólans í samvinnu við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands.
FIMMTUDAGINN 7. MAÍ 12:00 – 13:15 Í ÞJÓÐMINJASAFNI ÍSLANDS
Langar þig að vita meira um hvernig sérþekking og reynsla Íslands nýtist í þróunarsamvinnu?
Á þessum opna viðburði verður sjónum sérstaklega beint að starfsemi Landgræðsluskóla GRÓ sem stofnaður var árið 2007 til þess að efla þekkingu, hæfni og getu í þróunarlöndum til að endurheimta vistkerfi og stuðla að sjálfbærri landnýtingu.
Á viðburðinum verður farið yfir hvernig þekkingaruppbygging á sviði landgræðslu og sjálfbærrar landnýtingar hefur nýst í þróunarríkjum sem glíma við afleiðingar hnignunar vistkerfa og loftslagsbreytinga.
Komdu og hlustaðu á fyrrum nemendur Landgræðsluskóla GRÓ segja frá upplifun sinni, árangri og sýn á það hvernig markviss þjálfun, fræðsla og uppbygging færni getur stuðlað að raunverulegum framförum í sjálfbærri þróun.
Dagskrá
12:00 | Opnunarorð: Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands.
12:05 | Opnunarerindi: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra.
12:15 | Aðalerindi: Principal Mdolo, nemandi GRÓ LRT 2016 og lektor við Landbúnaðar- og náttúruauðlindaháskólann í Lilongwe í Malaví.
12:30 | Myndbrot: Reynslusögur nemenda Landgræðsluskóla GRÓ.
12:40 | Pallborðsumræður: * Shuhrat Valiyev, nemandi GRÓ LRT 2023 (Úsbekistan) og lektor.
Prince Addai, nemandi GRÓ LRT 2024 (Gana) og doktorsnemi.
Brendah Namara, nemandi GRÓ LRT 2023 (Úganda) og styrkþegi í MSc-námi.
Nandin-Erdene Geserbaatar, nemandi GRÓ LRT 2026 (Mongólía).
Umræðustjóri: Guðrún Guðjónsdóttir, starfandi forstöðumaður GRÓ LRT.
13:10 | Lokaorð: Nína Björk Jónsdóttir, forstöðumaður GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu.
Boðið verður upp á léttar veitingar að viðburði loknum.
Viðburðurinn er opinn öllum, en vinsamlega skráið þáttöku hér.
Um GRÓ:
GRÓ – Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu starfrækir fjóra skóla, á sviði jarðhita, sjávarútvegs, landgræðslu og jafnréttis, þar sem íslenskri sérfræðiþekkingu sem stuðlar að sjálfbærri þróun er miðlað til sérfræðinga frá samstarfslöndum Íslands í þróunarsamvinnu. GRÓ starfar undir merkjum UNESCO.