
Nemendurnir Heiðrún Hrund Sigurðardóttir, Sigríður Ósk Jónsdóttir og Svala Valborg Fannarsdóttir tóku höndum saman um nýsköpunarverkefnið Grænir hagar sem færði þeim alla leið í Evrópukeppni UNIgreen. Það sem hófst sem hugmynd við kvöldmatarborðið þróaðist í verkefni sem tengir saman sjálfbæra landnýtingu, sauðfjárrækt og kolefnisbindingu. Þær fengu með þátttökunni tækifæri til að kynna hugmynd sína á alþjóðlegum vettvangi, læra af öðrum nýsköpunarteymum og öðlast dýrmæta reynslu.
Hugmyndin að Grænum högum kviknaði eftir að frétt birtist síðasta haust um rannsókn Önnu Guðrúnar á kolefnislosun og -bindingu sauðfjárbeitar. Við kvöldmatarborðið kviknaði umræða um hvort ekki væri skemmtilegra að styrkja kind sem fengi að ganga á góðu beitilandi en að láta planta trjám fyrir sig. Á sama tíma voru nemendurnir í frumkvöðlafræði hjá Helga Eyleif Þorvaldssyni og þurftu að finna hugmynd að lokaverkefni í áfanganum. Þannig urðu Grænir hagar til.
Verkefnið snýst um að fólk og fyrirtæki geti styrkt íslenska kind með áskrift og þannig stutt við bætta beitarstýringu og verndun lands. Með þessu vilja nemendurnir tengja saman sauðfjárrækt og sjálfbæra landnýtingu á nýjan hátt.
Frá námsverkefni í Evrópukeppni
Þegar nemendurnir fengu tölvupóst um innlendu BISC-E / UNIgreen nýsköpunarkeppnina hjá LBHÍ sáu þau tækifæri til að prófa hugmyndina í stærra samhengi. Þau töldu verkefnið eiga vel heima í keppninni og vildu nýta tækifærið til að öðlast reynslu.
Þátttakan skilaði þeim dýrmætum lærdómi. Í fyrstu umferð Evrópukeppninnar kynntu þau hugmyndina fyrir alþjóðlegri dómnefnd og fengu gagnlegar ábendingar um atriði sem þyrfti að skoða betur. Jafnframt fengu þau jákvæð viðbrögð og hvatningu um að þau væru á réttri leið með góða hugmynd.
Þau lærðu einnig mikið af öðrum þátttakendum, bæði af því hvernig þeir kynntu verkefnin sín og hversu langt þeir voru komnir í þróun þeirra. Þar fengu þau hugmyndir að næstu skrefum og sáu hvað hægt væri að læra af reynslu annarra.
Eftir árangurinn í innlendu keppninni tryggðu Grænir hagar sér sæti í Evrópukeppninni, þar sem þau mættu fulltrúum 12 annarra þjóða. Upplifunin var að þeirra sögn bæði áhugaverð og lærdómsrík. Þau fengu að kynnast fjölbreyttum nýsköpunarhugmyndum og lausnum á ólíkum vandamálum.
Það kom þeim nokkuð á óvart hversu langt sum hinna teymanna voru komin, enda höfðu sum þeirra unnið að hugmyndum sínum mun lengur. Þrátt fyrir það var sérstaklega gaman að sjá þann metnað og þá trú sem þátttakendur höfðu á eigin verkefnum.
Ný reynsla í París
Þótt Ísland hafi ekki komist í hóp fimm efstu þjóðanna í Evrópukeppninni hélt vegferð Grænna haga áfram. Dagana 26. til 30. október héldu nemendurnir til Parísar í Frakklandi til þátttöku í Innovation Challenge á vegum UNIgreen.
Dagskráin var fjölbreytt og fól meðal annars í sér undirbúning fyrir keppnina, fyrirlestra frá öðrum frumkvöðlum og hópavinnu um umhverfið og áhrif mannsins á það. Á fimmtudeginum kynntu þau síðan verkefnið fyrir dómnefnd ásamt öðrum teymum frá háskólum innan UNIgreen-samstarfsins.
Ferðin var bæði skemmtileg og lærdómsrík. Nemendurnir komu heim reynslunni ríkari og fengu jafnframt tækifæri til að kynnast fjölda áhugaverðs fólks og eignast nýja vini.
Verkefnið sett í bið, en reynslan stendur eftir
Næstu skref hjá Grænum högum eru þó ekki að hefja frekari þróun strax. Nemendurnir hafa ákveðið að setja verkefnið tímabundið í pásu á meðan þær einbeita sér að BS-námi sínu.
Þrátt fyrir það líta þær stolt til baka á hversu langt hugmyndin hefur náð. Ferlið hefur gefið þeim mikla reynslu og kennt þeim heilmikið um nýsköpun, þróun hugmynda og kynningu verkefna. Þær útiloka heldur ekki að taka Græna haga aftur upp að námi loknu og þróa verkefnið áfram.
Hvetja aðra til að láta vaða
Að lokum hafa þær skýr skilaboð til annarra nemenda sem velta fyrir sér þátttöku í nýsköpunarkeppnum á borð við BISC-E: Látið vaða.
Að þeirra mati þarf hugmyndin ekki að vera stór eða fullmótuð í upphafi. Í ferlinu koma alltaf upp spurningar sem maður hafði ekki hugsað út í og oft þarf að endurskoða ýmislegt. Þær upplifðu þetta sjálfar og lærðu jafnframt mikið af öðrum þátttakendum.
Þátttakan gaf þeim ekki aðeins tækifæri til að þróa hugmynd og öðlast nýja reynslu heldur einnig til að kynnast nýju fólki, læra nýja hluti og stíga út fyrir þægindarammann.