
Teymið Grænir hagar, sem skipað er þeim Svölu V. Fannarsdóttur, Sigríði Ó. Jónsdóttur og Heiðrún Hrund Sigurðardóttir, tekur þátt í fyrstu umferð Evrópukeppninnar BISC-E (Bio-based Innovation Student Challenge Europe) föstudaginn 18. september 2026. Teymið bar sigur úr býtum í innlendu keppninni hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ) og UNIgreen Innovation í sumar og freistar þess nú að tryggja sér sæti í lokakeppninni sem fram fer í París.
Keppnin fer fram í gegnum Teams-fjarfundabúnað. Samkvæmt dagskrá keppninnar munu fulltrúar Íslands stíga á stokk klukkan 12:10 að miðevrópskum tíma (CEST), sem jafngildir klukkan 10:10 að íslenskum tíma. Íslenska teymið keppir við fulltrúa frá 12 öðrum Evrópulöndum, þar á meðal Ítalíu, Austurríki, Frakklandi og Spáni.
Join the BISC-E 2026 European final on Teams
Dómnefnd keppninnar er stýrt af Kees de Gooijer, fyrrverandi formanni TKI Agri&Food í Hollandi, ásamt sérfræðingum frá Þýskalandi, Litháen, Portúgal, Írlandi og Ítalíu. Tilkynnt verður hvaða fimm teymi komast áfram í úrslitahlutann í París undir lok dagsins.
Við hvetjum alla til að fylgjast með í gegnum TEAMS hlekkinn að neðan og veita teyminu okkar öflugan stuðning!