Háskóladagurinn 28. febrúar - komdu og kynntu þér málið!

Á Háskóladaginn, laugardaginn 28. febrúar nk., munu allir sjö háskólar landsins kynna námsframboð sitt. Kynningarnar fara fram í Háskólanum í Reykjavík, Háskóla Íslands og Listaháskólanum í Laugarnesi. Frítt verður í Háskóladags-strætóinn sem mun ganga á milli bygginganna.
Landbúnaðarháskóli Íslands kynnir allar námsbrautir á neðri hæð Háskólatorgs í HÍ. Þar taka nemendur, kennarar og starfsfólk LbhÍ vel á móti gestum og svara spurningum um námið við skólann, nemendagarða og aðstæður rannsókna og kennslu.
 

Jafnframt hægt að skoða verkefni nemenda í skógfræði og landgræðslu, náttúru- og umhverfisfræði, umhverfisskipulagi, hestafræði og í búvísindum. Landbúnaðarháskólinn starfar á þremur stöðum, á Hvanneyri í Borgarfirði, Keldnaholti í Reykjavík og á Reykjum í Ölfusi.

Umsóknarfrestur er til 5. Júní 2015 – komdu og kynntu þér hvaða nám Landbúnaðarháskólinn hefur upp á að bjóða!

 

Háskóladagurinn er haldinn laugardaginn 28. febrúar kl. 12-16 og taka allir sjö háskólar landsins þátt:

Landbúnaðarháskóli Íslands, Háskólinn á Hólum og Háskólinn á Akureyri kynna námsframboð sitt á neðri hæð Háskólatorgs HÍ.

Listaháskólinn kynnir námsframboð sitt í húsnæði LHÍ í Laugarnesi, Laugarnesvegi 91.

Háskólinn í Reykjavík og Háskólinn á Bifröst kynna námsframboð sitt í húsnæði HR í Nauthólsvík.

Háskóli Íslands kynnir námsframboð sitt í Aðalbyggingu, Háskólatorgi, Öskju og Háskólabíói.

 

Kynningar á landsbyggðinni:

Menntaskólinn á Egilsstöðum, 11. mars, kl.11.00-13.30
Verkmenntaskólinn á Akureyri, 12.mars, 11.00-13.30
Menntaskólinn á Ísafirði, 16.mars, 11.00-13.30
Fjölbrautarskóli Suðurlands,18.mars kl. 9.30-12.00
Menntaskóli Borgarfjarðar, 19.mars kl. 9.30–11.00 
Fjölbrautarskóli Snæfellinga, 19.mars kl. 13.00–14.30

 

 

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image