Hopp-bíll kominn á Hvanneyri
28.08.2026
Mynd sem tengist textanum

Landbúnaðarháskóli Íslands hefur gert samkomulag við Hopp um að deilibíll frá fyrirtækinu verði staðsettur á Hvanneyri. Bíllinn var afhentur á Hvanneyri í dag og er nú aðgengilegur öllum sem nota Hopp-appið.

Með samkomulaginu vill Landbúnaðarháskóli Íslands stuðla að fjölbreyttari og sveigjanlegri samgöngumöguleikum fyrir starfsfólk, nemendur, íbúa og gesti á Hvanneyri. Aðgengi að deilibíl getur meðal annars auðveldað ferðir til og frá Hvanneyri og styttri ferðir innan Borgarfjarðar, án þess að notendur þurfi að hafa eigin bifreið til umráða.

Bíllinn er staðsettur á Hvanneyri og bókun, aðgengi að bílnum og greiðslur fara fram í gegnum Hopp-appið. Allir sem hafa aðgang að þjónustu Hopp geta því nýtt bílinn samkvæmt almennum skilmálum þjónustunnar.

Samstarfið fellur vel að áherslum Landbúnaðarháskóla Íslands um sjálfbærni og að efla þjónustu og aðgengi að Hvanneyri. Deilibíllinn er jafnframt kærkomin viðbót við þá samgöngumöguleika sem nú standa nemendum, starfsfólki og samfélaginu á Hvanneyri til boða.

„Við fögnum mjög þessari viðbót á Hvanneyri. Samgöngur eru mikilvægt viðfangsefni fyrir samfélagið okkar og með Hopp-bílnum skapast nýr og sveigjanlegur kostur fyrir bæði nemendur, starfsfólk, íbúa og gesti. Við vonum að bíllinn verði vel nýttur,“ segir Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands.

„Það er sérstaklega ánægjulegt fyrir okkur hjá Hopp Reykjavík að taka þetta skref með Landbúnaðarháskóla Íslands og færa deilibíla þjónustuna út fyrir höfuðborgarsvæðið. Markmiðið okkar er að gera fólki auðveldara að komast leiðar sinnar án þess að þurfa alltaf að reiða sig á eigin bíl. Hvanneyri er frábær staður til að sýna hvernig deilibíll getur orðið áreiðanlegur hluti af samgöngum í minni samfélögum og við erum spennt að sjá hvernig bíllinn nýtist nemendum, starfsfólki, íbúum og gestum á svæðinu,” segir Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp Reykjavík.