• Forsíða
  • Fréttir
  • Hvanneyrarhátíð 2026: Menning, saga og fjölskylduskemmtun í Borgarfirði dagana 7.–8. ágúst
Hvanneyrarhátíð 2026: Menning, saga og fjölskylduskemmtun í Borgarfirði dagana 7.–8. ágúst
04.08.2026
Mynd sem tengist textanum

Dagana 7.–8. ágúst næstkomandi verður líf og fjör á Hvanneyri í Borgarfirði þegar Hvanneyrarhátíðin verður haldin með glæsibrag. Hátíðin býður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá fyrir alla fjölskylduna þar sem sveitasæla, landbúnaðarsaga og tónlist tvinnast saman.

Hátíðin hefst á föstudeginum 7. ágúst með frisbígolfmóti, tvísöng í Hvanneyrarkirkju og öflugum ungmennatónleikum sem setja tóninn fyrir helgina.

Laugardagurinn 8. ágúst er aðaldagur hátíðarinnar og verður formlega settur kl. 13:30 á kirkjutröppunum af Unni Brá Konráðsdóttur, sveitarstjóra Borgarbyggðar. Að því loknu verður boðið upp á fræðandi og skemmtilega viðburði um allt svæðið. Bjarni Guðmundsson kynnir bók sína í kirkjunni, Fergusonfélagið sýnir gamlar vélar í akstri á Hlaðinu og sýndur verður heyskapur með gamla laginu ásamt traktorafimi við kirkjuhólinn. Fornbílafélagið mun einnig kíkja í heimsókn og glæða svæðið fortíðarsjarma.

Að auki verður glæsileg tækjasýning á svæðinu þar sem Íslyft verður með til sýnis Avant 860i liðlétti ásamt nokkru úrvali af fylgitækjum, Manitou ULM415 skotbómulyftara og síðast en ekki síst öfluga John Deere dráttarvél.

Ungt og efnilegt listafólk mun stíga á stokk, bæði inni í kirkju og utan, þar sem Kristbjörg Ragney og Guðrún Katrín koma fram ásamt Ice Guys Next Generation.

Fyrir börnin verður einnig mikið um að vera. Boðið verður upp á andlitsmálun með Nönnu, kerruakstur, traktorafimi og auðvitað verður candyfloss í boði. Þá verður frítt inn í Landbúnaðarsafn Íslands og Ullarselið opið.

Matgæðingar og áhugafólk um handverk verða ekki svikin. Kvenfélagið 19. júní verður með sína margrómuðu kaffisölu í Gamla Bút, glæsilegur matar- og handverksmarkaður verður í hlöðunni/Halldórsfjósi, Skemman Kaffihús verður opið, matarvagn Alexöndru verður á svæðinu og Hraundís býður í opið hús að Ásvegi 4. Einnig verður kynning á Mýralífi og Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ) í íþróttahöllinni.

Dagskrá hátíðarinnar lýkur á laugardagskvöldi. Klukkan 18:00 hefst götugrill Kristjáns Thors við Skemmuna, og í kjölfarið tekur við brekkusöngur í umsjón Evu og Tóta. Samhliða þessu verður Hreppslaug opin gestum frá kl. 13:00 til 22:00. Verið öll hjartanlega velkomin – sjáumst á Hvanneyri!

DAGSKRÁ HVANNEYRARHÁTÍÐAR 2026

Föstudagur 7. ágúst

Frisbígolfmót

Tvísöngur í kirkjunni

• Ungmennatónleikar

Laugardagur 8. ágúst

Tímasettir viðburðir:

• 13:30 | Setning hátíðar á kirkjutröppunum – Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri Borgarbyggðar

• 13:45 | Bókarkynning í kirkjunni – Bjarni Guðmundsson

• 14:00 – 16:00 | Andlitsmálun fyrir börnin – með Nönnu

• 14:15 | Akstur gamalla véla á Hlaðinu – Fergusonfélagið

• 14:30 | Heyskapur með gamla laginu og traktorafimi – við kirkjuhól

• 15:15 | Ungt listafólk í kirkjunni – Kristbjörg Ragney og Guðrún Katrín

• 15:40 | Ungt listafólk við kirkjuna – Ice Guys Next Generation

• 18:00 | Götugrill og brekkusöngur við Skemmuna – Götugrill Kristjáns Thors & brekkusöngur með Evu og Tóta

Opið frá kl. 13:00 – 17:00 (og yfir daginn):

• Kaffisala Kvenfélagsins 19. júní í Gamla Bút

• Matar- og handverksmarkaður í hlöðunni / Halldórsfjósi

• Tækjasýning Íslyft: Til sýnis verða Avant 860i liðléttir ásamt úrvali af fylgitækjum, Manitou ULM415 skotbómulyftari og John Deere dráttarvél

• Kynning á Mýralífi og LBHÍ í íþróttahöllinni

• Frítt inn í Landbúnaðarsafn Íslands og Ullarselið opið

• Skemman Kaffihús opið

• Matarvagn Alexöndru á svæðinu

• Opið hús hjá Hraundísi, Ásvegi 4

• Fornbílafélagið kíkir í heimsókn

• Barna- og fjölskylduskemmtun: Kerruakstur fyrir börnin, traktorafimi og candyfloss!

• Hreppslaug er opin frá kl. 13:00 – 22:00.

Facebook viðburður