Íslensk forysta í nýju norrænu samstarfi um skipulagsmál
16.04.2026
Mynd sem tengist textanum

Í síðustu viku fór fram upphafsfundur á Keldnaholti þar sem unnið var að mótun nýs alþjóðlegs rannsóknarverkefnis um sjálfbæra borgarþróun á norðurslóðum. Verkefnið, Context-Sensitive Densification for Sustainable, Healthy, and Climate-Responsive Arctic Cities, hlaut nýverið undirbúningsstyrk frá Rannís í tvíhliða norðurslóðaáætlun Íslands og Noregs, og er það undir forystu Hörpu Stefánsdóttur, prófessors í skipulagsfræði.

Að verkefninu koma samstarfsaðilar frá The Arctic University of Norway (UiT) og Oslo School of Architecture and Design (AHO). Á fundinum, sem fór fram í formi þriggja daga vinnustofu, var lögð áhersla á að þróa rannsóknarhugmyndina áfram og undirbúa umsókn í alþjóðlega samkeppnissjóðinn New Frontiers in Research Fund, sem styður þverfagleg og umbreytandi rannsóknaverkefni.

Fundurinn markaði mikilvægt skref í að styrkja samstarfið og móta grunn að metnaðarfullri rannsóknaráætlun sem nú er í þróun ásamt samstarfsfólki í Kanada og Sviss.