Kolefnisskógrækt og notkun flygilda (dróna) í skógmælingum
07.04.2026
LiDAR mynd sem sýnir litrofslitað punktaský.png
LiDAR mynd sem sýnir litrofslitað punktaský.png

Í síðastu útgáfu Bændablaðsins var áhugaverð grein um kolefnisskógrækt og notkun flygilda (dróna) í skógmælingum. Í greininni fjalla þeir Emmanuel Pierre Pagneux og Ólafur Eggertsson dósentar við LBHÍ um verkefnið FORESTCARBONVISION en markmið verkefnisins er að þróa og bæta aðferðir til að meta kolefnisbindingu og lífmassa skóga með samþættingu fjarkönnunargagna og vettvangsmælinga. Í verkefninu er lögð sérstök áhersla á notkun flygilda (dróna) til að safna nákvæmum gögnum um vöxt og kolefnisbúskap skóga. Slíkar aðferðir geta einnig auðveldað vöktun á breytingum í skógum yfir tíma og þannig stutt við stefnumótun í loftslagsmálum og sjálfbæra þróun skógræktar.

Greinina má finna á bls. 62 í Bændablaðinu.