
Landbúnaðarháskóli Íslands (LBHÍ) fagnar þeirri ánægjulegu nýjung að verslunin Krónan hefur hafið heimsendingar á Hvanneyri. Þjónustan mun bæta til muna aðgengi nemenda, starfsfólks og íbúa svæðisins að fjölbreyttu vöruúrvali.
Í fyrstu verður ekið með pantanir á Hvanneyri þrisvar sinnum í viku, en pantað er í gegnum Krónuappið eða á vef verslunarinnar, kronan.is.
Til að kynna þjónustuna og aðstoða íbúa og nemendur við fyrstu skrefin munu fulltrúar Krónunnar verða með kynningarbás í húsakynnum LBHÍ á mánudaginn næstkomandi á milli kl. 12:00 og 16:00. Þar geta gestir fengið nánari upplýsingar og aðstoð við að setja upp appið eða skrá sig.
LBHÍ hvetur nemendur og nærsamfélagið allt til að nýta tækifærið, kíkja á básinn og fagna þessari kærkomnu aukningu á þjónustu á svæðinu.