Laus staða: Lektor í plöntulíffræði
23.10.2026
Mynd sem tengist textanum

Starf lektors í plöntulíffræði/líftækni við Landbúnaðarháskóla Íslands er laus til umsóknar.

Rannsóknir við Landbúnaðarháskóla Íslands beinast að nýtingu náttúruauðlinda á norðlægum slóðum og vill háskólinn efla kennslu, rannsóknir, og nýsköpun í líffræði og lífeðlisfræði plantna, frumulíffræði, líftækni og tengdum greinum

Landbúnaðarháskóli Íslands hefur stundað rannsóknir á ræktun og kynbótum á bæði grösum og korni í áratugi við aðstæður á norðurslóðum. Mikil þörf er á að efla rannsóknir og nýsköpun á sviði líffræði plantna enn frekar og þá einnig á sviði líffræði þara og þörunga, með sérstakri áherslu á tengingu við rannsóknir á norðurslóðum

Gert er ráð fyrir að sá sem ráðinn verði í starfið byggi upp rannsóknarhóp og leiði innlend og alþjóðleg rannsóknarverkefni og að umsækjandi stundi rannsóknir á plöntum á landi og í sjó og efli tengsl við nýsköpun. Þá er gert er ráð fyrir að umsækjandi kenni og leiðbeini nemendum í grunnnámi, meistaranámi og doktorsnámi.

Landbúnaðarháskóli Íslands hefur aðstöðu til rannsókna á þessu sviði, tæknimenn, tækjabúnað, húsnæði og land fyrir tilraunir og háskólabú. Þá er unnið að undirbúningi nýrrar jarðræktarmiðstöðvar við háskólann sem mun efla enn frekar aðstöðu til kennslu og rannsókna.

Landbúnaðarháskóli Íslands (LBHÍ) er mennta- og rannsóknastofnun á sviði landbúnaðar, landnýtingar, umhverfisvísinda, skipulagsfræða og landslagsarkitektúrs. LBHÍ vinnur að sjálfbærri nýtingu auðlinda og hágæða landbúnaðarframleiðslu og leggur áherslu á umhverfisvernd og sjálfbærni í allri sinni starfsemi. LBHÍ veitir BSc-, MSc- og PhD-gráður og býður upp á starfsnám í landbúnaði.

Starfið er innan fagdeildar Lífs og lands. Deildin skapar og varðveitir þekkingu á landbúnaðarvísindum sem nær yfir líffræðilega, tæknilega, hagfræðilega og vistfræðilega þætti bæði dýra- og plöntuframleiðslu í norðlægu umhverfi Íslands. Nýverið hófst samstarf við Breiðina á Akranesi og fleiri aðila um að efla þara- og þörungarækt.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Byggja upp og leiða alþjóðlega viðurkenndar rannsóknir á sviði líffræði og lífeðlisfræði plantna, líftækni og skyldum greinum, þ.m.t. á sviði þara og þörunga.
  • Birta ritrýndar vísindagreinar og afla alþjóðlegra rannsóknarstyrkja.
  • Koma á fót og leiða alþjóðlegt og innlent rannsóknarsamstarf.
  • Kenna og þróa námskeið í grunn- og framhaldsnámi.
  • Leiðbeina nemendum í grunn-, meistara- og doktorsnámi.

Hæfniskröfur

  • Doktorspróf í plöntulíffræði, frumulíffræði, líftækni eða tengdum greinum.
  • Þekking og reynsla af rannsóknum í plöntulíffræði og/eða tengdum greinum
  • Umsækjandi verður að hafa birt alþjóðlega viðurkenndar rannsóknir.
  • Kennslureynsla á háskólastigi.
  • Skýr framtíðarsýn fyrir rannsóknir umsækjanda við háskólann.
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og í hóp.
  • Samstarfshæfni og lipurð í samskiptum
  • Hæfni til að vinna úti á vettvangi við norðlægar aðstæður

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og hafa gert.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og hafa gert.

Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf, prófskírteini auk ritaskrár.

Samkvæmt reglum Landbúnaðarháskóla Íslands er rektor heimilt að veita framgang í stöðu dósents eða prófessors strax í kjölfar nýráðningar, uppfylli umsækjandi hæfniskröfur.

Landbúnaðarháskóli Íslands áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 20.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Eyjólfur Guðmundsson, Deildarforseti - eyjolfurg@lbhi.is - 433 5000

Guðmunda Smáradóttir, Mannauðs- og gæðastjóri - gudmunda@lbhi.is - 433 5000

Sækja um starf