Laus staða: Sérfræðingur í tölvuþjónustu
29.04.2026
Mynd sem tengist textanum

Á rekstrarsviði LBHÍ er laust til umsóknar starf sérfræðings í tölvuþjónustu. Þetta er fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf þar sem viðkomandi mun bera ábyrgð á tæknilegri uppbyggingu háskólans og þjónustu við starfsfólk og nemendur. Við leitum að einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt, og er tilbúinn að taka þátt í langtímauppbyggingu tölvuþjónustu við LBHÍ.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stefnumótun og framkvæmd tæknimála
  • Samningsgerð við birgja og innkaup á tæknibúnaði
  • Uppsetning og rekstur netþjóna (Linux og Windows, staðar- og víðnet)
  • Rekstur eldveggja, afritunarlausna og þráðlausra neta
  • Umsjón með kennslukerfum, fjarfundabúnaði og hljóðupptökukerfum
  • Tæknileg ráðgjöf og útfærsla varðandi prent- og aðgangsstjórnunarkerfi
  • Uppsetning á hugbúnaði sem notaður er við LBHÍ og þjálfun starfsmanna
  • Þjónusta við starfsfólk og nemendur
  • Umsjón með hugbúnaðarleyfum
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af stjórnun tölvu- og netkerfa
  • Þekking á kerfisrekstri og upplýsingatækni
  • Reynsla af rekstri skýjaumhverfa
  • Góð þekking á Windows Server og Active Directory
  • Reynsla af sýndarumhverfum (VMware eða sambærilegt)
  • Þekking á staðarnetum - Cisco og/eða UniFi búnaði
  • Góð þekking á upplýsingaöryggi
  • Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð
  • Góð samskiptafærni - við notendur með ólíkan tæknibakgrunn
  • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í máli og ritun

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Við bjóðum upp á:

Fjölbreytt starf í þverfaglegu og hlýlegu starfsumhverfi

Sveigjanleika og rými til faglegrar þróunar

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Theodóra Ragnarsdóttir

Rekstrarstjóri

Tölvupóstur: [email protected]

Sími: 433 5000

Guðmunda Smáradóttir

Mannauðs- og gæðastjóri

Tölvupóstur: [email protected]

Sími: 433 5000

Sækja um