Laus störf - Aðstoðarmanneskja í rannsóknum
03.04.2023
Storf í boði - Aðstoðarmanneskja í rannsóknum

Aðstoðarmanneskja í rannsóknum við Landbúnaðarháskóla Íslands

Laust er til umsóknar starf aðstoðarmanns í rannsóknum sem tengjast losun gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaðarstarfsemi. Starfið er við deild Ræktunar og fæðu hjá Landbúnaðarháskóla Íslands.

Hlutverk Landbúnaðarháskóla Íslands er að skapa og miðla þekkingu á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu á norðurslóðum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg aðstoð í rannsóknum og kennslu við LbhÍ í umhverfisfræðum sem tengjast búfjárrækt og jarðrækt.
  • Vinna sjálfstætt við mælingar, gagnasöfnun og viðhald á rannsóknatækjum.
  • Þátttaka í mótun nýrra rannsóknaverkefna og vinnu við öflun styrkja til þeirra.
  • Taka virkan þátt í faglegu þróunarstarfi og uppbyggingu innan skólans

Hæfniskröfur

  • Að lágmarki BS próf í búvísindum, líffræði eða tengdum greinum sem nýtast í loftslagsrannsóknum
  • Almenn þekking á íslenskum landbúnaði
  • Reynsla af rannsóknavinnu og bústörfum æskileg
  • Áhugi á rannsóknum og miðlun þekkingar

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 28.04.2023

Nánari upplýsingar veitir

Þóroddur Sveinsson, Deildarforseti - [email protected] - 433 5000Guðmunda Smáradóttir, Mannauðs- og gæðastjóri - [email protected] - 433 5000

Smelltu hér til að sækja um starfið