Lektor í skógfræði
01.04.2022
VIð leitum að lektor í skógfræði

Laust er til umsóknar 100% starf lektors í skógfræði við deild Náttúru og skóga hjá Landbúnaðarháskóla Íslands með áherslu á ræktun skóga og tengingu við sjálfbæra landnýtingu. Viðkomandi er ætlað að styrkja núverandi starf deildar á sviði rannsókna, kennslu og þjónustu við samfélagið.

Hlutverk deildarinnar er að byggja brú á milli náttúru og samfélags með rannsóknum, kennslu, þjálfun og ráðgjöf á sviði sjálfbærrar landnýtingar og endurheimtar vistkerfa.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Uppbygging alþjóðlega viðurkenndra rannsókna á sviði skógfræði
  • Birting ritrýndra vísindagreina, öflun rannsóknarstyrkja og virk þátttaka í alþjóðlegu og innlendu samstarfi
  • Kennsla og þróun námskeiða á grunn- og framhaldsstigi
  • Leiðbeining nemenda í rannsóknarverkefnum
  • Virk þátttaka í faglegu þróunarstarfi og uppbyggingu innan skólans

Hæfniskröfur

  • Doktorspróf í skógfræði eða skyldum greinum
  • Umsækjandi hafi birt rannsóknir sínar á viðurkenndum innlendum og erlendum vettvangi og hafi skýra framtíðarsýn á rannsóknum og þróun fræðasviðsins
  • Reynsla af kennslu og áhugi til fjölbreyttrar þekkingarmiðlunar á fræðasviðinu
  • Reynsla af þátttöku í rannsóknarverkefnum og öflun rannsóknarstyrkja
  • Reynsla af rannsóknum og þróun er tengjast skógfræði, sjálfbærni og landnýtingu
  • Samstarfshæfni og lipurð í samskiptum
  • Íslenskukunnátta er æskileg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 26.04.2022

Nánari upplýsingar veitir

Smelltu hér til að sækja um starfið