Málþing um áhrif mengunar frá eldgosinu í Holuhrauni á gróður og lífríki

Málþing um áhrif mengunar frá eldgosinu í Holuhrauni á gróður og lífríki verður haldið mánudaginn 23. mars nk. í fundarsalnum Kötlu á 2. hæð á Hótel Sögu. Málþingið stendur frá klukkan 13.00 - 17.00.
Tilgangur málþingsins er að miðla upplýsingum um bein og óbein áhrif mengunar frá eldgosinu í Holuhrauni og hvernig eftirliti með menguninni er og verður háttað.

Málþingið er haldið á vegum Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, Bændasamtaka Íslands, Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Hljóðupptökur og glærur vegna ofangreindra erinda og umræðna verða aðgengilegar eftir málþingið á vef Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, www.anr.is og vef Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra www.avd.is

Dagskráin er eftirfarandi:

13.00 - 13.30   Ávarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
13.30 - 13.50   Almennt um efnamengun frá eldgosinu
                             
- Veðurstofa Íslands
13.50 - 14.10   Loftmengun
                              - Umhverfisstofnun
14.10 - 14.30   Mengun yfirborðsvatns
                              
- Jarðvísindastofnun HÍ
14.30 - 14.50   Áhrif á lífríki í ám og vötnum
                             
- Veiðimálastofnun
14.50 - 15.10   Áhrif á villt dýr og vistkerfi 
                            
- Náttúrufræðistofnun

15.10 - 15.30  Kaffi

15.30 - 15.50  Áhrif á gróður og fóður fyrir búfé
                             
- Landbúnaðarháskóli Íslands
15.50 - 16.10  Áhrif á búfé
                              - Keldur
16.10 - 16.30  Áhrif á skógrækt
                             
- Skógræktin
16.30 - 17.00  Almennar umræður

Fundarstjóri er Halldór Runólfsson, ráðgjafi hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu

Myndin er fengin af vef Jarðvísindastofnunar Íslands.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image