• Forsíða
  • Fréttir
  • Fram í heiðanna ró: Málþing um sjálfbæra landnýtingu úthaga til beitar og annarra nota
Fram í heiðanna ró: Málþing um sjálfbæra landnýtingu úthaga til beitar og annarra nota
29.10.2026
Mynd sem tengist textanum

Í tilefni International Year of Rangelands and Pastoralists 2026 hafa Sameinuðu þjóðirnar útnefnt árið 2026 sem International Year of Rangelands and Pastoralists (IYRP). Markmiðið er meðal annars að vekja athygli á mikilvægi beitilanda/úthaga, sjálfbærri landnýtingu, endurheimt lands og hlutverki bænda og annarra landnotenda í þeim málefnum/málaflokk. Þann 19. nóvember næstkomandi munu Land og skógur og Landbúnaðarháskóli Íslands standa saman fyrir viðburði í tengslum við þetta alþjóðlega ár, þar sem skýr áhersla verður á íslenskar aðstæður, veruleika, markmið og framtíðarsýn.

Staðsetning: Hvanneyri, Ársalur á efstu hæð í Ásgarði, aðalbyggingu LbhÍ

Tími: fimmtudagur 19. nóvember 2026, kl. 10.00-15.00

Drög að dagskrá

10.00–10.15: Setning og inngangur

10.15–12.30: Erindi og reynslusögur

12.30–13.30: Hádegismatur

13.30–14.30: Vinnustofa / umræðuhópar

14.30–15.00: Samantekt og næstu skref

Í dagskránni er hugmyndin að rannsóknir, stefnumótun og reynsla fléttist saman. Áherslur geta til dæmis verið á: beitarnýtingu og beitarstjórnun, viðhald og aukningu landgæða, endurheimt vistkerfa, rannsóknir og vöktun, nýtingu gagna og tæknilausna, reynslu bænda og landgræðslufélaga, stuðningskerfi, regluverk og framtíðarsýn.

Land og skógur hefur með höndum margvísleg rannsókna-, eftirlits-, og fræðsluhlutverk sem tengjast þessum viðfangsefnum og er í samskiptum við bændur og aðra landnotendur í gegnum ýmis verkefni á sviði landbóta,landvöktunar og fleira. Landbúnaðarháskóli Íslands hefur einnig rannsókna- og fræðsluhlutverk varðandi áðurtalin viðfangsefni. Skólinn er aðili að Evrópuverkefninu DIGIRangeland þar sem kannað er hvernig stafræn tækni og nýsköpun (DTI) getur stutt við sjálfbæra búfjárrækt sem byggir á úthagabeit.

Stofnanirnar tvær auglýsa hér með eftir hugmyndum um framlög á málþingið, helst stutt erindi og/eða reynslusögur. Allir sem eitthvað telja sig hafa fram að færa eru hvattir til að senda inn hugmyndir, unnið verður úr þeim og endanleg dagskrá útbúin í kjölfarið. Vinsamlega sendið hugmyndir um framlög, ekki seinna en 4. nóvember á Jóhannes jois@lbhi.is eða Sigríði sigga@logs.is

Boðið verður upp á hádegismat og kaffihressingu. Takið daginn frá, kallað verður eftir skráningum þegar endanleg dagskrá liggur fyrir.