Meistararitgerð Þóru Margrétar Júlíusdóttur í skipulagsfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands vekur athygli fjölmiðla en hún var einmitt í viðtali á Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Í viðtalinu kemur meðal annars fram að með markvissu skipulagi grænna innviða við Nýja Landspítalann er hægt að innleiða náttúrumeðferðir sem styðja við bata sjúklinga, bæta vellíðan og stytta tímann sem fólk dvelur á spítalanum. Þrátt fyrir að niðurstöður rannsókna gefi eindregið til kynna ávinning af slíkum meðferðum þá virðist ekki vera reiknað með skipulagi grænna innviða fyrir slíkar náttúrumeðferðir við Nýja Landspítalann.
Í meistararitgerð sinni leggur Þóra Margrét Júlíusdóttir fram tillögur að fjórum sérhönnuðum meðferðargörðum á lóð spítalans, sem gætu dregið úr streitu, minnkað lyfjanotkun og stytt legutíma. Þetta gæti orðið fyrirmynd fyrir heilsueflandi umhverfi á Íslandi, þar sem engir opinberir náttúrumeðferðargarðar eru enn til staðar þrátt fyrir vaxandi þörf.
Hlusta má á þetta mjög áhugaverða viðtal við Þóru Margréti hér: Bítið á Bylgjunni.





