
We welcome everyone to attend the open defense of the MS-EnCHiL student Eleanor Greer, which will take place on May 28th, at 10-11:30 am, Icelandic time.
Thesis title: Biocrust facilitation of birch and willow seedling establishment under different moisture conditions
Supervisors: Alejandro Salazar (main supervisor), Kristín Svavarsdóttir, Ása L. Aradóttir.
Program: Double-degree Nordic Master program in Environmental Changes at Higher Latitudes (EnCHiL). In Eleanor‘s case, her two degrees come from Lund University and the Agricultural University of Iceland.
Eleanor Greer and her external examiner, Dr. Lettice Hicks, from Lund University, will be in Sweden, so the defense will de done online. See below a summary of Eleanor‘s thesis.
Ágrip
Lífræn jarðvegsskán (lífskurn) er samfélag lífvera í og við yfirborð jarðvegs, sem getur hjálpað landnámi æðplantna. Það ásamt öðrum eiginleikum jarðvegsskánar hefur vakið athygli á þessum samfélögum. Á síðari árum hafa rannsóknir aukist á því hvernig megi nýta skánina í endurheimt vistkerfa.. Nýliðun bæði birkis (Betula pubescens) og gulvíðis (Salix phylicifolia) virðist vera betri þar sem lífræn jarðvegsskán finnst heldur en þar sem jörð er auð. Samspil lífrænnar jarðvegsskánar og æðplantna virðist þó vera háð aðstæðum hverju sinni. Til að unnt sé að nýta lífræna jarðvegsskán markvisst í vistheimt er nauðsynlegt að skilja betur líffræðilega virkni hennar og samspili við umhverfisaðstæður.
Markmið rannsóknarinnar var að meta hvort lífræn jarðvegsskán geti ýtt undir spírun birkis og gulvíðis, sem eru lykiltegundir við endurheimt birkiskóga, við mismikinn raka, allt frá þurrki til mjög blautra aðstæðna.
Tilraun var sett upp á rannsóknastofu til að prófa áhrif raka á spírun birkis og gulvíðis á mismunandi undirlagi, lífrænni jarðvegsskán og jarðvegi af ógrónu landi, sem safnað var á þremur svæðum á Suður- og Vesturlandi. Undirlagið var sett í petriskálar og fræi af birki og gulvíði sáð í þær. Rakastigi var stýrt í tilrauninni þannig að þrjár meðferðir raka voru prófaðar; þurrkur, vel vökvað og mitt á milli þar sem aðstæður voru þannig að sýnin hvorki þornuðu né voru ofvökvuð (miðlungs). Fjöldi smáplantna sem komu upp, hæð þeirra og lífmassi voru mæld til að meta áhrifin. Þá var jarðvegsraki einnig mældur þannig unnt væri að meta áhrif skánarinnar á ýmsa þætti, svo sem ísig og upptöku vatns.
Nðurstöðurnar sýna að lífræn jarðvegsskán hafði áhrif á jarðvegsraka í tveimur meðferðum, miðlungs og vel vökvað. Og þegar borin voru saman sýni frá sömu svæðum þá virðist lífræn jarðvegsskán í samanburði við ógróið yfirborð milda neikvæð áhrif ofvökvunar á landnám smáplantna.
Lykilorð: Jarðvegsskán, spírun, landnám, endurheimt birkiskóga, jarðvegsraki.