
Við bjóðum öllum að mæta á opna meistaravörn Elísabetar Bjarnadóttur, nema í skipulagsfræði sem fer fram 18. september 2026 kl. 11:00.
Lokatitill ritgerðar:
Íslenskur titill: Samþætting náttúruvár í aðalskipulagsgerð sveitarfélaga á Íslandi: Greining á stjórnsýsluumgjörð, ábyrgð og verklagi
Leiðbeinendur og prófdómari:
Leiðbeinendur verkefnisins voru Dr. Harpa Stefánsdóttir, prófessor í skipulagsfræði og námsbrautarstjóri MS-náms í skipulagsfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands, og Emmanuel Pierre, lektor í landupplýsingum og fjarkönnun við Landbúnaðarháskóla Íslands. Prófdómari var Ingibjörg Jónsdóttir, dósent við jarðvísindadeild Háskóla Íslands.
Ágrip:
Ritgerðin fjallar um hvernig náttúruvá er samþætt í aðalskipulagsgerð sveitarfélaga á Íslandi, með áherslu á laga- og stjórnsýsluumgjörð, ábyrgð og verklag í skipulagsferlinu. Náttúruatburðir síðustu ára, einkum á Reykjanesskaga, hafa dregið fram mikilvægi þess að taka markvisst tillit til náttúruvár í skipulagsákvörðunum til að stuðla að hamfaraáhættuminnkun og auknu samfélagsöryggi.
Markmið rannsóknarinnar var að greina hvernig náttúruvá er samþætt í aðalskipulagsgerð, hvaða brotalamir eru í ferlinu og hvaða úrbætur eru mögulegar. Rannsóknin byggði á heimildarýni og netkönnunum meðal skipulagsfulltrúa, skipulagsráðgjafa, skipulagsnefnda, almannavarnanefnda og umsagnaraðila.
Niðurstöðurnar sýna að heildstætt hamfaraáhættumat er mikilvæg forsenda áhættuupplýstra skipulagsákvarðana, en að óskýrleiki ríkir um hugtök, ábyrgð og framkvæmd slíks mats. Skýr laga- og stjórnsýsluumgjörð sem tengir hættumat við skipulagsgerð er fyrir hendi vegna ofanflóða, en sambærilega umgjörð, leiðbeiningar og verklag skortir fyrir aðra náttúruvá. Þótt flestir þátttakendur telji að tekið sé tillit til náttúruvár, að minnsta kosti að hluta, var mat á því hvort það sé gert með fullnægjandi hætti mismunandi milli hópa.
Rannsóknin bendir til þess að skýra þurfi ábyrgð, styrkja laga- og stjórnsýsluumgjörð og koma á samræmdara ferli áhættumats við aðalskipulagsgerð. Með því mætti stuðla að áhættuupplýstari skipulagsákvörðunum og efla hamfaraáhættuminnkun.