Meistaravörn Sunnu Skeggjadóttur í Búvísindum
13.05.2026
Mynd sem tengist textanum

Vörnin fer fram þann 19. maí kl 14:00 á Hvanneyri. Vörninni verður einnig streymt á Teams. Hlekk á vörnina má finna hér.

Ágrip

Skipting köfnunarefnis (N) er aðferð sem hefur það að markmiði að hámarka niturnýtni (NUE) með því að tímasetja áburðargjöfina út frá ákveðnum vaxtarstigum þar sem nýting plantna er sem mest og þar með lágmarka umhverfisáhrif á borð við útskolun og losun gróðurhúsalofttegunda. Íslenskar rannsóknir á skiptri áburðargjöf í kornrækt eru fáar og aðferðin óalgeng meðal kornbænda á Íslandi. Þar að leiðandi er lítið vitað um mögulegan ávinning þessarar aðferðar við íslenskar aðstæður. Lagðar voru út tilraunir á tveimur jarðvegsgerðum með tveimur byggyrkjum, Smyril (sexraða) og Kríu (tvíraða), til þess að kanna áhrif mismunandi N skiptingar á vöxt, uppskeru próteininnihald korns (GPC) og NUE. Áburðarliðirnir innihéldu eina áburðargjöf við sáningu og skiptingu snemma á fánablaðslíðurfyllingastigi og/eða við lok blómgunar með mismunandi N magni við hverja áburðargjöf. Skipting N áburðar jók ekki uppskeru samanborið við eina áburðargjöf að vori (100/0/0%), en hár N skammtur við sáningu hafði tilhneigingu til þess að auka uppskeru. Áhrif jarðvegsgerðar voru meiri en áburðarliða á uppskeru og kornastærð. Samband fannst á milli kornastærðar og GPC, en smærri fræ sýndu hærra GPC. Sexraða yrkið var með marktækt meira GPC en tvíraða yrkið á báðum stöðum, en skiptingin 67/16.5/16.5% skilaði hærri heildar N upptöku og minna N tapi. Á vaxtartímabili sem einkennist af kulda og úrkomu virðist skipt N áburðargjöf snemma á fánablaðslíðurfyllingastigi og/eða í lok blómgunar ekki skila ávinningi þegar kemur að uppskeru, gæði og NUE í byggrækt á Íslandi.