• Forsíða
  • Fréttir
  • Mold ert þú - Jarðveg­ur og ís­lensk nátt­úra hlýtur Viður­kenn­ingu Hagþenk­is 2023
Mold ert þú - Jarðveg­ur og ís­lensk nátt­úra hlýtur Viður­kenn­ingu Hagþenk­is 2023
06.03.2024
Dr. Ólaf­ur Gest­ur Arn­alds, pró­fess­or við Landbúnaðarháskóla Íslands, hlaut í dag Viður­kenn­ingu Hagþenk­is 2023 fyr­ir bókina Mold ert þú – Jarðveg­ur og ís­lensk nátt­úra sem Iðnú gef­ur út.

Dr. Ólaf­ur Gest­ur Arn­alds, pró­fess­or við Landbúnaðarháskóla Íslands, hlaut í dag Viður­kenn­ingu Hagþenk­is 2023 fyr­ir bókina Mold ert þú - Jarðveg­ur og ís­lensk nátt­úra sem Iðnú gef­ur út. Alls voru 10 bæk­ur til­nefnd­ar en Hagþenk­ir hef­ur frá ár­inu 1986 veitt viður­kenn­ingu fyr­ir fræðirit, náms­gögn eða aðra miðlun fræðilegs efn­is til al­menn­ings og er það viður­kenn­ing­ar­ráð Hagþenk­is, skipað fimm fé­lags­mönn­um, sem stend­ur að val­inu.

Mynd sem tengist textanum
Dr. Ólaf­ur Gest­ur Arn­alds. Mynd Hagþenkir

Við óskum Ólafi innilega til hamingju með þessa stórglæsilegu viðurkenningu.

Frétt á Ruv.is