• Forsíða
  • Fréttir
  • Nákvæmnislandbúnaður í brennidepli: Arnar Þór kynnti drónatækni fyrir nemendum LBHÍ
Nákvæmnislandbúnaður í brennidepli: Arnar Þór kynnti drónatækni fyrir nemendum LBHÍ
04.09.2026
Mynd sem tengist textanum

Nemendur í BS-námi í búvísindum við Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ) fengu í gær góðan gest þegar Arnar Þór Þórsson frá Dronefly kom í heimsókn. Tilefni heimsóknarinnar var að veita nemendum hagnýta innsýn í hvernig nýjasta tækni er að breyta nútímabúskap.

Í heimsókninni kenndi Arnar nemendum á drónann DJI Agras T25, en sá dróni er sérstaklega hannaður með nákvæmnislandbúnað í huga. Nemendur fengu að sjá hvernig tæki af þessari gerð nýtast við markvissa áburðardreifingu, plöntuvernd og nákvæma kortlagningu á ræktunarlandi, sem auðveldar bændum að lágmarka efnanotkun og hámarka afrakstur.

BS-nám í búvísindum við LBHÍ veitir ítarlega þekkingu á helstu stoðum landbúnaðarins, þar á meðal jarðrækt og landnýtingu, búfjárrækt, búvélatækni og tækninýjungum, auk reksturs og stjórnunar búfyrirtækja. Verkefni sem þessi sýna vel hvernig kennslan við skólann tengist nýjustu þróun í atvinnugreininni.

Nánari upplýsingar um námið má finna á lbhi.is.