Nám í verki – úti í náttúrunni
18.09.2026

Nemendur í meistaranámi í Endurheimt vistkerfa hafa undanfarið unnið að endurheimtarverkefni á Mið-Fossum í Borgarfirði og farið í vettvangsferðir þar sem fjölbreytt verkefni á sviði vistheimtar voru skoðuð.
Leiðin lá meðal annars í Hítardal og á Hellisheiði, þar sem nemendur fengu innsýn í ólíkar nálganir, áskoranir og lausnir í endurheimt vistkerfa.
Við þökkum starfsfólki Lands og skógar og ON kærlega fyrir fróðlega kynningu, góðar móttökur og fyrir að deila reynslu sinni og þekkingu með hópnum.