Námsráðgjafi á Hvanneyri
25.10.2026
Mynd sem tengist textanum

Teymi Nemendaráðgjafar Háskóla Íslands (NHÍ) hefur tekið að sér þjónustu og verkefni náms- og starfsráðgjafa við Landbúnaðarháskóla Íslands. Bryndís Gylfadóttir mun vera fulltrúi teymisins á Hvanneyri og vera með starfsstöð þar annan hvern þriðjudag og staðsett á skrifstofu við hlið bókasafnsins. Dagsetningar verða auglýstar í dagatali nemenda á Uglu, á samfélagsmiðlum og í tilkynningum í tölvupósti.

Nemendur geta bókað staðviðtal á Hvanneyri í gegnum bókunarsíðu LBHI. Þess utan geta nemendur bókað myndsímtal á TEAMS, símaviðtal eða staðviðtal á Háskólatorgi á síðu nemendaráðgjafar HÍ, www.hi.is/nhi. Einnig eru nemendur LBHI hvattir til þess að kynna sér framboð á fjölbreyttri fræðslu og gagnlegu efni á heimasvæði Náms- og starfsráðgjafar í Uglu LBHI eða undir síðu nemendaráðgjafar HÍ, www.hi.is/nhi, þeim til styrktar í námi.

Nemendur sem þurfa á úrræðum í námi og prófum að halda vegna fötlunar, sértækra námsörðuleika, athyglisbrests eða veikinda geta sótt um úrræði í gegnum Uglu. Námsráðgjafi getur veitt leiðbeiningar með umsóknarferlið. Skila þarf inn læknisvottorði, greiningu eða öðrum gögnum frá viðeigandi sérfræðingum með umsókninni. ATH að umsóknarfrestur úrræða er 1. okt og 1. mars á hverju misseri. Í framhaldi þarf að samþykkja samninginn undir mínir samningar á Uglu, í seinasta lagi á degi umsóknarfrests svo hann verði gildur í lokaprófum haustmisseris. ATH að Hvanneyri er með 2 stuttannir.