
Nemendur í tamninganámi við Landbúnaðarháskóla Íslands hafa lokið frumtamningaráfanganum og eru nú að hefja verknám sem stendur frá 19. október til 15. desember.
Frumtamningaráfanginn gekk gríðarlega vel og öðluðust nemendur aukna þekkingu og færni í tamningu ungra hrossa, allt frá fortamningu til frumtamningar. Áfanganum lauk með skilasýningu þar sem eigendum tryppanna var boðið að koma og sjá afrakstur vinnunnar. Þar fengu þeir góða innsýn í það sem tryppin höfðu lært og þær framfarir sem þau höfðu tekið á meðan á þjálfuninni stóð. Nemendur sýndu einnig tryppi úti fyrir þá eigendur sem vildu á skilasýningunni. Sýningin gekk vel og voru eigendur mjög ánægðir með tryppin sín og árangurinn.
Nú tekur við verknám þar sem nemendur fá áfram tækifæri til að efla verklega færni sína og öðlast frekari reynslu í meðferð og þjálfun unghrossa.
Í byrjun janúar snúa nemendur aftur til náms við Landbúnaðarháskóla Íslands. Þá tekur við fjölbreytt nám þar sem meðal annars verða kenndir áfangarnir þjálfun unghrossa 1 og 2, atferlisfræði, járningar og hófhirða, auk almennrar reiðkennslu. Í reiðkennslunni verður lögð rík áhersla á sæti knapans og markvissa þjálfun hans, enda eru jafnvægi og rétt líkamsbeiting mikilvægir þættir í góðri reiðmennsku og árangursríkri þjálfun hrossa.
Fram undan er því spennandi og lærdómsríkur tími þar sem nemendur halda áfram að þróa færni sína og byggja ofan á þann góða grunn sem þeir hafa þegar öðlast í tamningu og þjálfun ungra hrossa.