
NordWool er samstarfsnet Norðurlandanna sem hefur það að markmiði að stuðla að sjálfbærri nýtingu norrænna sauðfjárkynja, með sérstaka áherslu á eiginleika ullar. Verkefnið miðar að því að auka vægi ullarinnar, sem oft hefur verið vanmetin, í sauðfjárrækt og stuðla þannig að betra jafnvægi við þá áherslu sem nú er lögð á kjötframleiðslu.
Með því að leiða saman sérfræðinga í spuna og ullarvinnslu, sauðfjárræktendur og bændur ásamt vísindafólki stefnir NordWool að því að auka viðurkenningu á norrænni ull, bæta gæði hennar og efla markaðsmöguleika hennar. Jafnframt styður verkefnið við líffræðilega fjölbreytni, verndun sauðfjárkynja í útrýmingarhættu og varðveislu menningararfs.
Nú stendur yfir söfnun á ullarsýnum og útlitseiginleikum íslensks sauðfjár.