Norrænir rektorar funda á Íslandi
27.09.2023
Rektorar og aðrir stjórnendur háskóla á fundinum. MYND frá hi.is /Gunnar Sverrisson

Háskólarektorar og stjórnendur háskólasamtaka á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum komu saman til fundar í Hátíðasal Aðalbyggingar HÍ þriðjudaginn 26. september. Þar voru ræddar þær áskoranir sem blasa við í alþjóðlegu samstarfi. Samstarfsvettvangur norrænna háskóla (NUS - det nordiske universitetssamarbejde) stóð að fundinum.

Öllum rektorum háskóla á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndunum er boðið til ráðstefnunnar og að þessu sinni bar hún yfirskriftina „Challenges of Nordic and Baltic Universities in International Collaboration".

Nánar í frétt á vef HÍ