
Þér er boðið á vinnustofu í Landbúnaðarháskóla Íslands þar sem farið verður yfir allt sem skiptir máli í nýsköpun. Nokkur íslensk sprotafyrirtæki verða á staðnum og taka þátt í vinnustofunni:
- Svepparíkið – Þróar sjálfbært ræktunarkerfi fyrir sælkerasveppi sem nýtir lífræna hliðarstrauma úr landbúnaði í hringrásarvæna matvælaframleiðslu.
- Sveppasmiðjan – Byggir upp samþætt aquaponics-kerfi þar sem sveppir, grænmeti og fiskar eru ræktaðir saman í sjálfbæru framleiðslu- og rannsóknarumhverfi.
- Lava Seaweed – Þróar landbundna ræktun á rauðþörungum sem nýtir næringarríkt frárennslisvatn úr fiskeldi í hringrásarkerfi.
- Hvammsskel – Fjölskyldurekið fyrirtæki sem vinnur að uppbyggingu bláskeljaræktar í Hvammsfirði og aukinni framleiðslu íslenskrar skeljar.
- Stormur – Þróar lausnir þar sem gagnaver eru staðsett þannig að orka og afgangshiti nýtist betur í samfélaginu.
- Hringvarmi – Nýtir afgangshita frá gagnaverum til að knýja staðbundnar einingar fyrir matvælaframleiðslu og bæta orkunýtingu.
- Sea Growth – Þróar frumuræktað sjávarfang þar sem fiskfrumur eru ræktaðar til að framleiða sjálfbæran fisk án veiða eða hefðbundins fiskeldis.
Við skoðum hvernig hugmyndir verða að raunverulegum verkefnum og sprotafyrirtækjum. Til að gera vinnuna hagnýta munum við vinna með ofantöldum fyrir fyrirtækjum og eru þátttakendur hvattir til að koma með sínar eigin hugmyndir til að ræða og þróa.
Allar hugmyndir velkomnar: Sprotar, rannsóknarhugmynd, lausn í sjálfbærni eða eitthvað allt annað! Þú þarft ekki að vera með fullmótaða hugmynd – bara forvitni og áhuga!
Dagsetning: 16. og 17 mars nk.
Staðsetning: LBHÍ á Hvanneyri
Ekki missa af tækifærinu til að þróa þína hugmynd áfram, spjalla við þau sem nú þegar hafa farið í gegnum ferlið frá „hugmynd-að-vöru“ og tengjast forsvarsmönnum fyrirtækja í nýsköpun!
Öll velkomin! Þátttaka er ókeypis, en takmarkaður fjöldi sæta er í boði.