• Forsíða
  • Fréttir
  • Opið fyrir umsóknir í Framfarasjóð Ingibjargar Guðmundsdóttur og Þorvaldar Guðmundssonar í Síld og fisk 2026
Opið fyrir umsóknir í Framfarasjóð Ingibjargar Guðmundsdóttur og Þorvaldar Guðmundssonar í Síld og fisk 2026
21.04.2026
Mynd sem tengist textanum

Framfarasjóður Ingibjargar Guðmundsdóttur og Þorvaldar Guðmundssonar í Síld og fisk auglýsir hér með eftir umsóknum.

Tilgangur sjóðsins er að styrkja nemendur Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) til framhaldsmenntunar (náms til meistara- og doktorsgráðu) og til að styrkja rannsóknir nemenda á fagsviði LbhÍ. Við úthlutun styrkja er fyrst og fremst horft til námsárangurs nemandans og mikilvægi námsverkefnis hans fyrir viðkomandi fræðasvið. Einnig er horft til frumkvæðis og virkni umsækjenda í félagsstörfum og samfélagsverkefnum.

Umsóknarfrestur er til 11. maí nk. og skal senda umsóknir á netfangið [email protected].

Í umsókn skulu koma fram eftirtalin atriði:

i. Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang

ii. Náms- og starfsferill umsækjanda

iii. Meðmæli

iv. Heiti verkefnis og stutt hnitmiðuð lýsing á verkefninu, sem nýta má til almennrar umfjöllunar og kynningar, hljóti verkefnið styrk

v. Tímaáætlun verkefnis

Styrkúthlutun mun fara fram við skólaslit LbhÍ þann 5. júní nk.

Stjórn Framfarasjóðs Ingibjargar Guðmundsdóttur og Þorvaldar Guðmundssonar í Síld og fisk