
Hefur þú áhuga á doktorsnámi í einhverjum af fremstu lífvísindaháskólum Evrópu? Í gegnum UNIgreen samstarfið gefst nú einstakt tækifæri til að sækja um PhD stöður við háskóla á Ítalíu – í nánu samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands.
Háskólinn í Modena (UNIMORE) óskar nú eftir umsóknum í 3 rannsóknastöður fyrir árið 2026. Sérstök áhersla er lögð á STEBA námsleiðina (Agri-food sciences, technologies and bio-technologies), en þar er unnið að framtíðarlausnum í matvælavísindum og líftækni.
Verkefnin sem auglýst er eftir umsóknum í:
1. Combined Non-GMO Strategies to Enhance the Aromatic Potential of Lager Yeasts and Improve Beer Quality (LAGERBOOST)
2. The role of gut microbial metabolites of dietary phenolic compounds in human health
3. UMCC culture collection as a reservoir of microbial resources for sustainable bioprocesses
Af hverju að sækja um?
- Alþjóðlegt umhverfi: Þú færð tækifæri til að stunda rannsóknir við virta háskóla á meginlandinu.
- Samstarf við LBHÍ: Námið er tengt UNIgreen bandalaginu, sem tryggir öflugt tengslanet milli samstarfsskólanna.
- Fjölbreytt viðfangsefni: Stöðurnar spanna allt frá tækninýjungum í landbúnaði til sjálfbærrar matvælaframleiðslu.
Frestur til að skila inn umsókn er til 30. júní næstkomandi og gert er ráð fyrir að nýjir doktorsnemar hefji nám 1. nóvember 2026.
Við hvetjum áhugasama til að kynna sér listann yfir lausar stöður og nánari upplýsingar um umsóknarferlið á vef UNIMORE: Announcements of competition for admission to PhD Programmes - 42° cycle - A.Y. 2026/2027 | Università degli Studi di Modena e Reggio Emilia
Ekki láta þetta tækifæri fram hjá þér fara!