Rektor LBHÍ kjörin í stjórn ICA
21.10.2026
Mynd sem tengist textanum

Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, hefur verið kjörin í stjórn ICA, samtaka evrópskra háskóla á sviði lífvísinda, sem fulltrúi Norður-Evrópu.

Alls voru sex nýir stjórnarmenn kjörnir í tíu manna stjórn samtakanna. Meðal þeirra er Marta Mendel frá samstarfsháskóla LBHÍ, SGGW í Varsjá.

„Það er mér heiður að taka sæti í stjórn ICA. Ég hlakka til að vinna með öðrum stjórnarmönnum að því að efla samstarf lífvísindaháskóla í Evrópu,“ segir Ragnheiður.

ICA Europe er evrópskt tengslanet fyrir háskóla á sviði lífvísinda, landbúnaðar, skógræktar, matvælaframleiðslu, náttúruverndar og sjálfbærrar nýtingar auðlinda. Samtökin tengja saman yfir 50 háskóla og styðja við alþjóðlegt samstarf, þekkingarmiðlun, sameiginleg verkefni og hagsmunagæslu gagnvart evrópskum stofnunum.