Réttindanám í meðferð varnarefna hefst 3.9
13.08.2024

Umhverfisstofnun, Vinnueftirlitið og Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Ísands bjóða upp á nám í meðferð varnarefna fyrir alla sem vilja mennta sig í meðferð varnarefna við eyðingu meindýra og/eða meðferð plöntuverndarvara í landbúnaði og garðyrkju, sem og þau sem þurfa að endurnýja réttindi sín á þessu sviði. Námið er metið til eininga á framhaldsskólastigi.

Þrjár námsleiðir eru í boði:

I. Fullt nám í meðferð plöntuverndarvara og útrýmingarefnaII. Nám í meðferð útrýmingarefna við eyðingu meindýraIII. Nám í meðferð plöntuverndarvara í landbúnaði og garðyrkju

Námið er kennt í fjarnámi og námsefni frá kennurum aðgengilegt allan sólarhringinn á námsvef skólans meðan á námskeiðinu stendur. Nemendur stýra því alfarið sjálf hvenær hlustað er á fyrirlestra og farið yfir námsefnið.

Námskeiðið hefst þriðjudaginn 3. september og lýkur með rafrænu prófi þriðjudaginn 17. september. Opið fyrir umsóknir til 29. ágúst nk.

Allar nánari upplýsingar á vef Endurmenntunar Landbúnaðarháskóla Íslands.