Rúningsnámskeið - vélrúningur sauðfjár
24.10.2024
Sauðfé sem búið er að rýja
Sauðfé á húsi sem búið er að rýja

Rúningsnámskeið Endurmenntunar LBHÍ hefur verið haldið um árabil og notið mikilla vinsælda. Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja læra vélrúning sauðfjár, sem og þeim sem vilja endurmennta sig í góðri líkamsbeitingu og réttum handbrögðum við rúninginn.

Námskeiðið er að mestu í formi verklegrar kennslu þar sem nemendur fá tækifæri til að æfa rétt handbrögð með dyggri aðstoð kennara. Á námskeiðinu verða bæði kennd og sýnd grunnatriði við vélrúning á sauðfé þar sem mikil áhersla er lögð á góða líkamsbeitingu við rúning, rétt handbrögð og frágang.

Næsta námskeið fer fram helgina 2. -3. nóvember.

Kennari: Julio Cesar Guiter­rez bóndi á Há­vars­stöðum í Hval­fjarðarsveit, margfaldur Íslandsmeistari í rúningi.

Tími: Laugardaginn 2. nóvember og sunnudaginn 3. nóvember kl. 9-17.

Allar nánari upplýsingar á vef Endurmenntunar Landbúnaðarháskóla Íslands