
Skeifudagurinn, einn hápunktur skólaársins hjá Landbúnaðarháskóla Íslands, fór fram í gær á sumardaginn fyrsta. Dagurinn einkenndist af mikilli gleði, góðri reiðmennsku og fjölmenni bæði á Mið-Fossum og á Hvanneyri.
Dagskráin hófst með hefðbundnum hætti á Mið-Fossum þar sem fánareið og opnunarávarp Eyjólfs Guðmundssonar deildarforseta settu tóninn. Það var svo sérstakur heiður að Frú Halla Tómasdóttir setti daginn formlega að þessu sinni. Í kjölfarið fylgdi fjölbreytt dagskrá þar sem nemendur sýndu afrakstur vetrarins.
Guðrún Tinna hlutskörpust í fjórgangi
Keppt var í fjórgangi (V2) í fullorðinsflokki og var hart barist um efstu sætin. Eftir forkeppnina leiddu þær Guðrún Tinna Rúnarsdóttir og Katrín Diljá Vignisdóttir, en þær héldu sínum sætum í úrslitum eftir glæsilega frammistöðu.
Verðlaun og heiðursmerki
Eftir sýningar á Mið-Fossum, sem innihéldu meðal annars tamningatryppi nemenda í Reiðmennsku III og skrautreið, var haldið á Hvanneyri þar sem kaffisala Grana var á sínum stað. Þar voru helstu verðlaun dagsins afhent:
- Morgunblaðsskeifan 2026: Sólrún Silfá Guðmundsdóttir hlaut þessa æðstu viðurkenningu ársins.
- Framfaraverðlaun Reynis: Guðrún Jóna Stefánsdóttir hlaut þessi hvatningarverðlaun fyrir góðan árangur og framfarir í vetur.
- Eiðfaxabikarinn: Silja Hrönn Sverrisdóttir.
Guðbjartur Þór Stefánsson og Linda Rún Pétursdóttir, reiðkennarar við skólann, veittu nemendum viðurkenningarskjöl. Sigrún Ólafsdóttir, staðgengill fyrir formann Félags tamningamanna, og Eyjólfur Guðmundsson, deildarforseti sáu um afhendingu stærstu verðlaunanna við hátíðlega athöfn.
Að sögn aðstandenda tók á annað hundrað manns þátt í deginum og var stemmningin til fyrirmyndar, enda veðrið með besta móti þetta árið.
Forkeppni
Fjórgangur V2 · Fullorðinsflokkur
- Guðrún Tinna Rúnarsdóttir,Toppur frá Litlu-Reykjum, 5,97
- Katrín Diljá Vignisdóttir,Fold frá Hemlu II, 5,47
- Sólrún Silfá Guðmundsdóttir,Kjarkur frá Ánastöðum, 5,43
- Guðrún Alda Ólafsdóttir,Gullborg frá Haukatungu Syðri 1,5,37
- Mikael Jens Halldórsson,Nös frá Ásatúni, 5,23
- Silja Hrönn Sverrisdóttir,Sprettur frá Brimstöðum, 5,20
- Guðrún Jóna Stefánsdóttir,Rán frá Draflastöðum, 4,63
- Linda Björg K. Kristjánsdóttir,Dreki frá Grýtubakka II, 4,53
- Valgerður Á Sigurðardóttir,Kvöldpula frá Lundi, 4,37
- Friðgeir Óli Eggertsson,Álfadís frá Minni-Völlum, 4,20
A-úrslit
Fjórgangur V2 · Fullorðinsflokkur
- Guðrún Tinna Rúnarsdóttir,Toppur frá Litlu-Reykjum, 6,17
- Katrín Diljá Vignisdóttir,Fold frá Hemlu II, 5,97
- Guðrún Alda Ólafsdóttir,Gullborg frá Haukatungu Syðri 1, 5,47
- Sólrún Silfá Guðmundsdóttir,Kjarkur frá Ánastöðum, 5,43
- Mikael Jens Halldórsson,Nös frá Ásatúni, 4,67
B-úrslit
Fjórgangur V2 · Fullorðinsflokkur 7
7. Friðgeir Óli Eggertsson,Álfadís frá Minni-Völlum,"5,37"
8. Guðrún Jóna Stefánsdóttir,Rán frá Draflastöðum,"5,20"
9. Silja Hrönn Sverrisdóttir,Sprettur frá Brimstöðum,"5,07"
10. Valgerður Á Sigurðardóttir,Kvöldpula frá Lundi,"4,53"
11. Linda Björg K. Kristjánsdóttir,Dreki frá Grýtubakka II,"4,17"