• Forsíða
  • Fréttir
  • Skipulagsfræði við LBHÍ fær aðild að Evrópusamtökunum AESOP
Skipulagsfræði við LBHÍ fær aðild að Evrópusamtökunum AESOP
16.03.2026
Harpa Stefánsdóttir ásamt Maria Håkansson forseta AESOP og  Giancarlo Cotella ritara
Harpa Stefánsdóttir ásamt Maria Håkansson forseta AESOP og Giancarlo Cotella ritara

Harpa Stefánsdóttir, prófessor í skipulagsfræði og námsbrautarstjóri við LBHÍ, tók í síðustu viku þátt í árlegum fundi stjórnenda skipulagsnámsbrauta í Evrópu, Heads of Schools Meeting, sem haldinn var við Norwegian University of Life Sciences (NMBU) í Noregi. Fundurinn er vettvangur fyrir leiðtoga skipulagsnáms í Evrópu til að ræða helstu áskoranir og þróun í menntun skipulagsfræðinga.

Í tengslum við fundinn var á lokuðum fundi samþykkt aðild námsbrautar LBHÍ í skipulagsfræði að Association of European Schools of Planning (AESOP). Með þeirri ákvörðun hefur LBHÍ formlega gengið til liðs við evrópsk samtök háskóla sem bjóða upp á nám í skipulagsfræði.