• Forsíða
  • Fréttir
  • Sögulegt skref við Landbúnaðarháskóla Íslands í samstarfi við SGGW
Sögulegt skref við Landbúnaðarháskóla Íslands í samstarfi við SGGW
29.06.2026
Mynd sem tengist textanum

Spennandi tímar eru framundan hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ) og UNIgreen-samstarfsnetinu, en í ágúst 2026 verður nýtt og samstarfsnám við pólska háskólann SGGW (Warsaw University of Life Sciences) formlega sett. Um er að ræða söguleg tímamót því þetta er í fyrsta sinn sem hægt verður að hefja háskólanám (Diplóma í búvísindum með áherslu á dýraheilbrigði) hér á landi sem opnar beint leið til gráðu í dýralækningum.

Skipulag námsins og mikil aðsókn

Námsleiðin er sett upp þannig að nemendur klára fyrstu tvö árin í náminu á Íslandi en halda svo utan til Varsjár í Póllandi þar sem þeir ljúka seinni 3,5 árunum. Mikið magn framúrskarandi umsókna bárust um námsplássin og er ljóst að ásóknin er mikil. Vinna við mat á umsóknum stendur yfir og mun fyrsti hópurinn hefja nám í haust við Landbúnaðarháskóla Íslands.

Pólskir gestir á Hvanneyri til að leggja lokahönd á skipulagið

Skipulagsvinna er í fullum gangi og í þessari viku fer fram mikilvægur undirbúningsfundur á Hvanneyri til að tryggja að öll kennsluaðstaða og skipulag sé til fyrirmyndar áður en fyrstu nemendurnir mæta.

Í tilefni af þessu mættu samstarfsfulltrúar SGGW og LBHÍ til landsins. Það eru þau; Marta Mendel, vararektor alþjóðamála, Michał Skibniewski, deildarforseti og Karolina Barszcz, varadeildarforseti.

Nánari upplýsingar um námið.