Spennandi tímar framundan hjá Mýralífi: Ný vefsíða tekin í notkun
11.06.2026

Landbúnaðarháskóli Íslands leiðir hið umfangsmikla verkefni Mýralíf, sem miðar að endurheimt votlendis og líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi. Skólinn gegnir lykilhlutverki í framkvæmd þess og ber ábyrgð á verkefnastjórnun og samhæfingu milli samstarfsaðila.
Mýralíf er nú komið á samfélagsmiðla og hefur glæst vefsíða verið tekin í notkun. Við hvetjum alla til að fylgja verkefninu – enda eru spennandi tímar framundan hjá öllum samstarfsaðilum sem munu skilmerkilega greina frá framvindu verkefnisins og framkvæmd þess.