Störf í boði - Kennari í starfsmenntanámi
09.10.2023
Störf í boði – Kennari í starfsmenntanámi

Laust er til umsóknar starf starfsmenntanámskennara í búfræði við deild Ræktunar og fæðu hjá Landbúnaðarháskóla Íslands.

Hlutverk Landbúnaðarháskóla Íslands er að skapa og miðla þekkingu á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu á norðurslóðum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með áföngum sem tengjast jarðrækt og sjálfbærri nýtingu lands
  • Skipulag verklegrar kennslu og verkefna
  • Námsmat nemenda
  • Vinna sjálfstætt og í hópum við uppfærslu kennsluskráa og gerð nýrra áfanga
  • Þátttaka í rannsókna- og nýsköpunarstarfi sem og við við öflun styrkja
  • Þátttaka í faglegu þróunarstarfi og uppbyggingu innan skólans

Hæfniskröfur

  • BS próf í búvísindum eða tengdum greinum sem snerta jarðrækt og sjálfbæra nýtingu lands
  • Hagnýt reynsla og þekking á ýmsum sviðum landbúnaðar
  • Reynsla af kennslu í búfræði
  • Áhugi á miðlun þekkingar og kennslufræðum
  • Góð íslenskukunnátta
  • Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð
  • Skipulagsfærni
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Gott vald á talaðri og ritaðri íslensku og ensku

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 20.10.2023

Nánari upplýsingar veitir

Sækja um starf

Mynd sem tengist textanum