Störf í boði – Lektor í jarðvegsfræði

Störf í boði – Lektor í jarðvegsfræði

Landbúnaðarháskóli Íslands auglýsir stöðu lektors í jarðvegsfræði við deild Náttúru og skóga hjá Landbúnaðarháskóla Íslands.

 

Hlutverk deildarinnar er að byggja brú á milli náttúru og samfélags með rannsóknum, kennslu, þjálfun og ráðgjöf á sviði sjálfbærrar landnýtingar og endurheimtar vistkerfa.

Viðkomandi er ætlað að styrkja núverandi starf deildar á sviði rannsókna, kennslu og þjónustu við samfélagið auk þátttöku í alþjóðlegum rannsóknum. Lögð er áhersla á eiginleika jarðvegs, moldina í íslenskri náttúru, mold sem hluta vistkerfa í margvíslegu ástandi og sjálfbæra landnýtingu. Byggð hefur verið upp aðstaða til rannsókna á jarðvegi við skólann.

 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Uppbygging alþjóðlega viðurkenndra rannsókna á sviði jarðvegsfræða og skyldra greina
  • Birting ritrýndra vísindagreina, öflun rannsóknarstyrkja og virk þátttaka í alþjóðlegu og innlendu samstarfi
  • Kennsla og þróun námskeiða á grunn- og framhaldsstigi
  • Leiðbeining nemenda í rannsóknarverkefnum
  • Þátttaka í kennslu við Landgræðsluskóla GRÓ
  • Virk þátttaka í faglegu þróunarstarfi og uppbyggingu innan skólans

Hæfniskröfur

  • Doktorspróf í jarðvegsfræði eða skyldum greinum
  • Reynsla af rannsóknum og starfi sem tengjast jarðvegi
  • Reynsla af kennslu og áhugi til fjölbreyttrar þekkingarmiðlunar á fræðasviðinu
  • Reynsla af þátttöku í rannsóknarverkefnum og öflun rannsóknarstyrkja
  • Umsækjandi hafi birt rannsóknir sínar á viðurkenndum alþjóðlegum vettvangi og hafi skýra framtíðarsýn á kennsluháttum, rannsóknum og þróun fræðasviðsins
  • Samstarfshæfni og lipurð í samskiptum
  • Íslenskukunnátta er æskileg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 27.10.2023

Nánari upplýsingar veitir

  • Bjarni Diðrik Sigurðsson, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Sími: 433 5000
  • Guðmunda Smáradóttir, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Sími: 433 5000
  • Hlynur Óskarsson This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Sími: 433 5000

Sækja um starf

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image